Atkvæðagreiðsla um nýjan samning við ríkið stendur yfir, 2 dagar eftir!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Atkvæðagreiðsla um nýjan samning við ríkið hófst fyrir viku síðan og stendur til 29.október nk.


Atkvæðagreiðslan fer með rafrænum hætti.


Allir félagsmenn sem starfa eftir samningi SGS við ríkið eru á kjörskrá.


Til að greiða atkvæði er farið inn á síðu Starfsgreinasambandsins www.sgs.is og  smellt á „kjarasamningar 2015“ á forsíðunni. Þá ætti viðkomandi að geta greitt atkvæði með því að nota lykilorð sem hann fékk sent i pósti en allir kosningabærir félagsmenn fengu bækling í pósti sem innihélt m.a lykilorð.


Hér má sjá samninginn í heild sinni


Hér má sjá kynningarbæklinginn




Stéttarfélag Vesturlands hvetur félagsmenn til að nýta atkvæðarétt sinn!!

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei