Sumarfrí 2017

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Ertu farinn að plana fríið í sumar??


 


Í dag 15.mars er opnað fyrir umsóknir um sumarorlofstímabil og stendur til og með 12.apríl nk.


Í boði eru eins og áður tvö hús í Húsafelli Kiðárskógur 1 og Kiðárskógur 10, eitt hús í Ölfusborgum og glæsileg íbúð á Akureyri Ásatún 26 sem var tekin í notkun í fyrra.


 


Til að sækja um er félagsmönnum bent á orlofsvefinn okkar http://orlof.is/stettvest/ eða skila til okkar umsóknareyðublaði sem kom með Félagsfréttum sem var borið út í bréfpósti í þessari viku.  

Þá er einnig búið að opna sumartímabil í Ásholti í Reykjavík en þar gildir alltaf reglan fyrstur kemur fyrstur fær.


 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei