Ungir leiðtogar – námskeið

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Ungir leiðtogar er námskeið sem ætlað er ungu fólki. Markmiðið er að fræða um verkalýðshreyfinguna og efla ungu fólk sem leiðtoga hvort sem er á vinnustaðnum eða á breiðari vettvangi.


Námskeiðið er sniðið að ungum félögum í verkalýðshreyfingunni; trúnaðarmönnum, starfsmönnum stéttarfélaga og ungu fólki í trúnaðarráðum.


Stjórn ASÍ -UNG


Þrátt fyrir að ungt fólk (18-35 ára) sé stór hópur á vinnumarkaði er virkni þess lítil innan stéttarfélaga og aðkoma þess að stjórnum, þingum og ákvörðunartöku innan verkalýðshreyfingarinnar takmörkuð. Ungt launafólk glímir við ótal áskoranir á vinnumarkaði og mikilvægt er að rödd þess heyrist víða. 5 Fréttamolar – Frá skrifstofu 12. febrúar 2018 – 100. tbl.


Námskeiðið samanstendur af þrem námslotum sem miða að því að styrkja ungt fólk í verkalýðshreyfingunni og gera því kleift að koma röddum ungs fólks á framfæri, á vinnustaðnum, innan hreyfingarinnar og úti í samfélaginu. Með námskeiðinu gefst ungum félögum kostur á að öðlast fjölbreytta þekkingu á verkalýðshreyfingunni ásamt því að efla ræðumennsku, framkomu og sjálfsstyrk. Síðast en ekki síst er námskeiðinu ætlað að styrkja enn frekar tengsl og samvinnu ungs launafólks þvert á starfsgreinar og landshluta.


Nánari upplýsingar um námskeiðið eru hér.


 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei