Skrifstofustarf í Borgarnesi
Stéttarfélagi Vesturlands vantar sem fyrst starfsmann á skrifstofu félagsins í Borgarnesi.
Helstu verkefni:
· Félags-, fjárhags- og viðskiptamannabókhald.
· Ýmis konar afgreiðslustörf.
· Símsvörun.
Æskilegir kostir eru góð almenn undirstöðumenntun, bókhaldskunnátta – helst þekking á DK – hugbúnaði, hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
Nánari upplýsingar veita formaður félagsins, netfang: signy@stettvest.is og skrifstofustjóri, netfang: silja@stettvest.is. Síminn er 430 0430 eða 894-9804 hjá formanni.
Umsóknum sé skilað fyrir miðvikudaginn 28. feb. á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands, Sæunnargötu 2 a, 310 Borgarnes.