Aðalfundir deilda Stéttarfélags Vesturlands
verða haldnir þriðjudaginn 13. mars kl. 19.00
í Alþýðuhúsinu, Sæunnargötu 2a.
Deildirnar eru: Iðnsveinadeild, Iðnaðar- mannvirkja- og stóriðjudeild, Matvæla – flutninga- og þjónustudeild, Deild verslunar- og skrifstofufólks og Deild starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögum.
Dagskrá:
1. #metoo – hvað geta stéttarfélögin gert?:
Drífa Snædal framkvæmdastjóri SGS kynnir
hverjar eru skyldur félaganna og hvernig þau geta stutt félagsmenn
2. Hvað þýðir að kjarasamningum var ekki sagt upp? Kom eitthvað frá stjórnvöldum? Hvernig stöndum við að undirbúningi fyrir næstu samninga?
3. Venjuleg aðalfundarstörf deildanna
4. Önnur mál
Við byrjum fundinn á súpu að hætti hússins og hvetjum félagsmenn til að fjölmenna!
Stéttarfélag Vesturlands