Ályktun ASÍ um greiðsluvanda heimilanna

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Miðstjórn ASÍ lýsir yfir megnri óánægju með seinagang við að endurskipuleggja fjárhag heimilanna, þrátt fyrir að Alþingi hafi samþykkt mikilvægar breytingar á réttar- og samningsstöðu almennings gagnvart kröfuhöfum. Miðstjórnin krefst þess að stjórnvöld tryggi þegar að heimili í vanda geti nýtt sér þau úrræði sem eiga að standa þeim til boða. Til þess að svo verði þarf m.a að:


·  Tryggja að nauðsynlegar reglugerðir og verklagsreglur um framkvæmd verði gefnar út strax.


·  Falla frá kröfunni um að forsenda fyrir aðstoð sé að lán séu í skilum.


·  Gera Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna í samráði við héraðsdóm, kleift að ráða a.m.k. 50 fjármálaráðgjafa til næstu 6-9 mánaða til að aðstoða fólk í greiðsluvanda.


·  Heimila sjálfstætt starfandi einstaklingum að nýta sér úrræðin enda sé greiðsluvandinn vegna eðlilegra húsnæðisskulda.


·  Bæta verulega upplýsingagjöf til almennings um þau úrræði sem í boði eru.


Alþýðusambandið á ekkert erindi í nánara samstarf við stjórnvöld um framvindu efnahagsmála fyrr en búið er að koma þessum málum í rétt horf. Áréttuð er tillaga ASÍ um að stofnaður verði Bjargráðasjóður heimilanna þar sem lán sem eru á afskriftareikningum fjármálastofnana verði færð á eina hendi til að tryggja jafnræði og skilvirkni við að endurskipuleggja fjárhag heimilanna.


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei