¨”Vakna þú mín þyrnirós¨” Hættið að tala – framkvæmið!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Ályktun stjórnar Stéttarfélags Vesturlands. 28. sept. 2009.-


 


Stjórn Stéttarfélags Vesturlands lýsir yfir áhyggjum af aðgerðarleysi stjórnvalda í efnahags- og atvinnumálum. Eilífar illdeilur um keisarans skegg, hvort sem eru innan ríkisstjórnar eða við stjórnarandstöðuna skila engum árangri, draga mátt úr þjóðinni og koma í veg fyrir að menn snúi sér að brýnni verkefnum.


Ríkistjórnin þarf að láta verkin tala og hefja uppbyggingu atvinnu- og efnahagslífs.


Því meiri tíma sem eytt er í gagnslaust þref, því dýpra sökkvum við í fen vonleysis og skulda.


 


Stjórn Stéttarfélags  Vesturlands varar við því að gengið verði of langt í niðurskurði í opinberum framkvæmdum og þjónustu, hvort sem um er að ræða ríki eða sveitarfélög. Slíkt eykur einungis á atvinnuleysi. Menn mega ekki spara sér til skaða. Að segja upp starfsmönnum í láglaunastörfum hjá ríki og sveitarfélögum hefur ekki mikinn raunverulegann sparnað í för með sér.


Stjórnvöld verða að þora að ráðast í mannaflsfrekar framkvæmdir og viðhalda grunnþjónustu.


 


Einnig þarf að koma hjólum atvinnulífsins af stað aftur m.a. með lækkun vaxta. Lækkun vaxta mun einnig létta byrgðar heimilanna í landinu, sem bíða í ofvæni eftir úrlausn sinna mála.


Menn munu aldrei finna þá lausn sem allir  telja réttláta og sanngjarna, kominn er tími til að velja einhverja af þeim fjölmörgu hugmyndum sem komið hafa fram á sjónarsviðið.


Tímafrekar bollaleggingar fresta aðgerðum og frestur eykur vandann.


Nú þegar ár er liðið frá því að efnahagskerfi þjóðarinnar hrundi, er kominn tími athafna. Dragist þær enn meira á langinn er voðinn vís.


 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei