Atvinnumál á krepputímum – opinn fundur

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Atvinnumálanefnd ASÍ stendur fyrir opnum fundi um atvinnumál á krepputímum, miðvikudaginn 13. janúar, kl. 10:00-15:00 að Sætúni 1 Reykjavík – fundarsal Eflingar 4. hæð. Farið verður yfir reynsluna af núverandi vinnumarkaðsaðgerðum, hvað hefur tekist vel og hvað má betur fara. Einnig verður horft til framtíðar á þau tækifæri sem þar bíða. Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga hafa.


Opnir fundir Atvinnumálanefndar ASÍ eru venjulegir nefndarfundir – nema hvað þeir eru opnir öllum þeim sem áhuga kunna að hafa. Tilgangurinn er að kynna störf nefndarinnar fyrir þeim sem starfa að atvinnutengdum málum innan hreyfingarinnar. Markhópurinn nær m.a. til miðstjórnar ASÍ, formanna aðildarsamtaka ASÍ, fulltrúa í málefnanefndum ASÍ, fulltrúa ASÍ í Vísinda- og tækniráði, Nýsköpunarsjóði, Nýsköpunarmiðstöð og í vinnumarkaðsráðunum. 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei