Kæru félagsmenn
Frá og með deginum í dag hefur stjórn orlofssjóðs ákveðið að hækka endurgreiðslur til félagsmanna vegna hótelgistingar í 10.000 kr. hámark 70.000 á ári.
Greiðum niður gistinótt um kr. 10.000 hámark 70.000 á ári. Með því að koma með löglegan reikning stílaðan á nafn og kt félagsmannsins á skrifstofu félagsins er hægt að fá endurgreiðslu á hótelgistingu innanlands. Endurgreitt er 50% af reikningnum en aldrei meira en 10.000.-
- Félagsmaður sem greiðir 50% af viðmiðunariðgjaldi eða meira fær fulla endurgreiðslu.
- Félagsmaður sem greiðir undir 50% af viðmiðunargjaldi fær hálfa endurgreiðslu.
Greitt er 50% af kostnaði, eða 25% af kostnaði
Viðmiðunargjald vegna 2023 er 43.000.-