Endurgreiðsluhlutfall styrkja allt að 90% til 1. maí 2022

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Vegna áhrifa frá Covid 19 settu fræðslusjóðirnir af stað átak í fræðslu sem hófst 15. mars 2020. Hluti átaksins fólst í því að endurgreiðsluhlutfall styrkja hækkaði tímabundið úr 75% í 90% hjá bæði fyrirtækjum og til einstaklinga með lokadagsetningu 31. desember 2021. Stjórnir sjóðanna hafa ákveðið að halda áfram með allt að 90% endurgreiðsluhlutfall til 1. maí 2022 og verður það þá endurskoðað aftur.

Hægt er að sjá reglur vegna einstaklingsstyrkja hér: Landsmennt – Sveitamennt – Ríkismennt

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei