Félagsmannasjóður SGS – starfsmenn sveitarfélaga ATHUGIÐ

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Allir félagsmenn sem störfuðu hjá sveitarfélagi á árinu 2022 eiga að fá greitt úr Félagsmannasjóði SGS í byrjun febrúar nk. Iðgjald í sjóðinn er 1,5% af heildarlaunum.

Síðastliðin tvö ár hefur umsýsla sjóðsins verið hjá Starfsgreinasambandinu en í fyrra var gerð breyting á og nú sjá aðildarfélögin sjálf um umsýslu sjóðsins. Vegna útborgunar úr sjóðnum eru félagsmenn beðnir um að senda bankaupplýsingar og kennitölu á stettvest@stettvest.is – sem allra fyrst. 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei