Nú er haustið gengið í garð með allri sinni litadýrð. Daginn er tekið að stytta og litlar sem stórar verur skottast til vinnu og skóla í skammdeginu. Því er gott að hengja endurskin á yfirhafnir og skólatöskur svo auka megi sýnileika í myrkrinu. Við minnum félagsfólk okkar á að þau geti nálgast endurskinsmerki sem og annan nauðsynlegan vetrarvarning sér að kostnaðarlausu á skrifstofu okkar að Sæunnargötu 2a. Hvetjum við félagsfólk til að fara varlega í skammdeginu og auka sýnileika og öryggi ungra sem aldna sem ganga sína leið á dimmum morgnum. 

