Kvennaverkfall 24. október 2023

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Boðað er til kvennaverkfalls 24. október 2023 undir yfirskriftinni Kallarðu þetta jafnrétti?  Stéttarfélag Vesturlands skorar á félagsfólk að leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir jafnrétti á þessum degi og skorar jafnframt á fyrirtæki að sýna samstöðu í verki svo konur og kvár geti lagt niður störf þennan dag, án skerðingar á launum.

Samtök launafólks ásamt fjölmörgum öðrum baráttusamtökum kvenna og hinsegin fólks standa að þessum degi í ár. Konur og kvár sem það geta eru hvött til að mæta ekki til vinnu þennan dag og sinna jafnframt ekki þeim störfum og ábyrgð sem felst í annarri og þriðju vaktinni.

Kvennaverkfallið er ekki verkfall eins og vinnulöggjöfin segir til um. Launafólk tekur þátt á eigin forsendum og hvetjum við konur og kvár að fá heimild hjá sínum yfirmanni til að taka þátt og berjast fyrir jafnrétti.

Stéttarfélag Vesturlands hvetur atvinnurekendur til að heimila starfsfólki sínu að taka þátt án þess að skerða laun.

Spurt og svarað um kvennaverkfallið 2023

Kvennaverkfall 2023 – almennt hvatningarbref

Women’s Strike 2023 – a letter of encouragement to individuals

Strajk kobiet

Nánar má lesa um Kvennaverkfall 2023 hér

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei