Orlofssjóður Stéttarfélags Vesturlands ákvað á dögunum að kaupa nýtt sumarhús í landi Minni-Borga í Grímsnesinu. Húsið sem er nú í byggingu verður um 112 fermetrar á einni hæð. Er það teiknað með fjórum rúmgóðum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og er annað þeirra með útgang út á verönd. Alrými verður með eldhúsi og stofu þar sem einnig verður útgengt út á verönd. Um er að ræða timburhús á for-steyptum undirstöðum með timburgólfi. Afhendist húsið fullklárða að utan og innan með verönd, heitum potti og skjólveggjum. Lóð verður frágengin með bílastæði, grasflöt og trjágróðri.
Húsið verður með vinyl parketi á gólfum í öllum rýmum. Falleg innrétting verður í eldhúsinu sem verður fullbúið helstu tækjum nútíma eldhúss. Svefnherbergi verða með fataskápum og baðherbergi verða bæði með sturtuklefum og búin vönduðum tækjum og innréttingum. Heitur pottur verður á verönd sem mun rúma 6-8 manns. Myndin með fréttinni er tölvuteikning af húsinu. Stefnt verður að húsið verði tilbúið um áramót og verður þá opnað fyrir bókanir.

