Samiðn – atkvæðagreiðsla hefst kl 12:00 12.mars 2024

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Klukkan 12 á hádegi í dag, 12.mars, hefst atkvæðagreiðsla vegna nýs kjarasamnings milli Samiðnar og Samtaka atvinnulífsins, sem lýkur 19. mars nk. kl. 12:00 á hádegi.

Allir sem eru á kjörskrá aðildarfélaga fá sendan hlekk til atkvæðagreiðslu í gegnum tölvupóst eða sms, ef upplýsingar eru til staðar. Einnig er hægt að greiða atkvæði með því að fara í gegnum eftirfarandi hlekk https://samidn.is/kosning 

Allar upplýsingar er hægt að fá um samninginn hér á pólsku/polish  á ensku/english og á íslensku

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei