Samningur milli LÍV og SA samþykktur

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Niðurstöður í atkvæðagreiðslu meðal félaga LÍV í kosningu um nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins liggja nú fyrir.

Kjarasamningur LIV við SA var samþykktur með 88,08% atkvæða í kosningu sem lauk á hádegi í dag, en já sögðu 628 félagsfólk í félögum innan LÍV og nei sögðu 66 eða 9,26%. Þau sem tóku ekki afstöðu voru 19 eða 2,66%. Á kjörskrá félaga innan LÍV voru 3491 og greiddu 713 atkvæði, og var kjörsókn því 20,42 %.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei