Stjórn Orlofssjóðs Stéttarfélags Vesturlands hefur ákveðið að slaka á reglum um endurgreiðslur vegna orlofshúsa, meðan á aðgerðum vegna Covid 19 standa yfir. Við höfum tekið húsin almennt úr leigu virka daga, þannig að nokkrir dagar séu alltaf á milli þess sem nýjir leigjendur fara inn í húsin.
Ef þið hafið bókað hjá okkur hús eða íbúð og viljið hætta við þá endilega hafið samband við skrifstofu félagsins. Hægt er óska eftir endurgreiðslu eða eiga inneign í kerfinu.
Við minnum félagmenn okkar á að fara að öllum reglum sem snúa að sóttvörum og virða ábendingar og tilmæli sóttvarnaryfirvalda.