Tímabundið skrifstofu og eftirlitsstarf í Borgarnesi – erum við að leita að þér?

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Tímabundið skrifstofu og eftirlitsstarf í Borgarnesi

 

Stéttarfélag Vesturlands auglýsir eftir starfsmanni á skrifstofu félagsins.

Um er að ræða fullt sumarstarf (3-5 mánuðir eftir samkomulagi)

Helstu verkefni:

  • Almenn skrifstofustörf
  • Aðstoð við vinnustaðaeftirlit

Æskilegir kostir eru góð almenn undirstöðumenntun, hæfni í mannlegum samskiptum,  rík þjónustulund og góð tungumálakunnátta.

Nánari upplýsingar veita formaður félagsins, netfang: signy@stettvest.is og skrifstofustjóri, netfang:  silja@stettvest.is. Síminn er 430 0 430 eða 894-9804 hjá formanni.

Umsóknum skal skilað fyrir 29.apríl á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands, Sæunnargötu 2 a, 310 Borgarnesi.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei