Verslum fallega á aðventunni

Stéttarfélag VesturlandsFréttir

LÍV, VR og Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau vilja minna neytendur á að sýna afgreiðslufólki í verslunum og þjónustu virðingu en samkvæmt könnun sem VR lét gera árið 2023 höfðu ríflega helmingur verslunarfólks orðið fyrir áreiti eða ofbeldi í störfum sínum. Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér að neðan og vill Stéttarfélag Vesturlands taka heilshugar undir. Verslum fallega á aðventunni sem og alla aðra daga.

Nú þegar aðventan gengur brátt í garð mæðir mikið á verslunarfólki vítt og breitt um landið. Verslunarmiðstöðvar fyllast og landsmenn njóta góðs af fjölbreyttum og faglegum verslunarrekstri á hinum ólíkustu sviðum. Þótt erlend netverslun hafi færst í aukana og sé orðinn sjálfsagður hluti af verslunarháttum hérlendis, þá sjá fjölmargir virðið í því að styðja við innlenda verslun sem skapar bæði störf og annan virðisauka innanlands. Góð samskipti afgreiðslufólks og viðskiptavina eru gulls ígildi, en því miður eru líka dæmi um að slík samskipti séu ekki til fyrirmyndar. 

Samtaka gegn áreitni í verslun

LÍV, VR og Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) hafa tekið höndum saman um aukið öryggi verslunarfólks en samkvæmt könnun sem VR framkvæmdi árið 2023 hefur ríflega helmingur verslunarfólks orðið fyrir áreitni eða ofbeldi einhvern tímann á starfsævinni. Fyrirtæki hafa í auknum mæli innleitt verkferla til að styðja starfsfólk og stuðla að forvörnum svo draga megi úr líkum á ofbeldi og áreitni í verslun, en einnig tryggja skjót og fagleg viðbrögð komi slíkt upp. Mikilvægt er að fleiri fyrirtæki feti þessa braut því rétt viðbrögð geta skipt höfuðmáli í að draga mörk gagnvart gerendum og að tryggja að upplifun og staða þolenda sé tekin alvarlega.

Á Íslandi vinnur fjöldi ungs fólks í verslunum og margt ungt fólk stígur sín fyrstu skref á vinnumarkaði á verslunargólfinu. Því miður sýna rannsóknir að ungt fólk er líklegra en eldra fólk til að upplifa áreitni og ofbeldi í verslunarstarfi og slíkt getur haft áhrif á þau fyrir lífstíð. Viðskiptavinir verslana eru stundum hluti af vandamálinu og sýna ungu fólki ekki aðeins ókurteisi heldur hreinlega ógnandi hegðun. En viðskiptavinir geta líka verið hluti af lausninni og gripið inn í verði þeir vitni af ólíðandi framkomu í garð starfsfólks eða sótt liðsinni ef á þarf að halda. Slíkt getur skipt sköpum fyrir ungt fólk í erfiðri stöðu.

Tími fyrir lagabreytingar

Starfsfólk í verslun og þjónustu á að njóta verndar gegn ofbeldi og áreitni af hálfu viðskiptavina og annarra þriðju aðila. Við hvetjum stjórnvöld til að efla forvarnir og úrræði á þessu sviði og vinna með samtökum atvinnurekenda og launafólks að mati á nauðsynlegum breytingum vegna mögulegrar fullgildingar samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 190 frá 2019.

Enn fremur hvetjum við til góðra samskipta í verslunum um allt land á aðventunni sem alla aðra daga ársins. Kurteisi og þolinmæði eru góðir eiginleikar sem gera lífið betra. Verslum fallega á aðventunni!  

Eiður Stefánsson, formaður LÍV

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR

Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei