Heppinn félagsmaður sem tók þátt í Gallup könnun Stéttarfélags Vesturlands og Verkalýðsfélagsins Hlífar var Ísgeir Aron Hauksson. Hann hlaut kr. 50.000 í vinning og fékk hann greiddan 22.desember. Ísgeir sagði þetta frábærar fréttir. Þess má geta að Ísgeir starfar hjá PJ byggingum á Hvanneyri.
Félagið þakkar honum fyrir þátttökuna og vonast til þess að vinningurinn nýtist vel.