Reglur um einstaklingsstyrki

Starfsreglur Landsmenntar um einstaklingsstyrki

Fræðslusjóður SA og verkafólks á landsbyggðinni úthlutar á samningstímanum einstaklingsstyrkjum til félagsmanna þeirra stéttarfélaga sem eru aðilar að Starfsgreinasambandi Íslands (SGS) þó ekki þeirra aðildarfélaga SGS sem mynda Flóabandalagið.

Hvaða skilyrði þarf félagsmaður að uppfylla til að eiga rétt á styrk til starfsmenntunar hjá Landsmennt, starfsmenntun Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni?

  1. Félagsmaður sem unnið hefur fullt starf í a.m.k. 6 mánuði af síðustu 24 og greitt til aðildarfélags Landsmenntar á þeim tíma á rétt á stuðningi til starfsnáms. Greitt er hlutfallslega fyrir fólk í hlutastörfum.  (Breytt síðast 1. janúar 2016)
  2. Við ákvörðun upphæðar er miðað við greidd félagsgjöld síðustu 12 mánaða. Félagsgjald af lágmarkslaunum í 100% starfi eða meira gefur fulla styrkupphæð.
  3. Fylla þarf út umsókn inn á Mínum síðum Stéttarfélags Vesturlands og skila ásamt reikningi/kvittun. Umsókn þarf að berast innan 12 mánaða frá dagsetningu reiknings.
  4. Áunnin réttindi félagsmanna innan Landsmenntar, Sjómenntar, Starfsafls, Starfsmenntasjóðs verslunar-og skrifstofufólks, Ríkismenntar SGS og Sveitamenntar SGS og LN haldast óbreytt þrátt fyrir flutning á milli aðildarfélaga sjóðanna.
  5. Sá sem hverfa þarf tímabundið af vinnumarkaði af ástæðum sem valda því að ekki ber að skila tryggingagjaldi af launum hans, heldur í allt að tuttugu og fjóra mánuði þeim rétti til  starfsmenntunarstyrks sem hann hafði áunnið sér hjá sjóðnum. Að tuttugu og fjórum mánuðum liðnum, frá því hann hvarf af vinnumarkaði, fellur réttur hans að fullu niður.
  6. Foreldrar í fæðingar-eða foreldraorlofi geta nýtt sér áunnin rétt skv. 1. gr. ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á orlofi stendur.
  7. Félagsmenn í atvinnuleit halda áunnum rétti sínum eins og hann var við starfslok ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld af atvinnuleysisbótum.
  8. Félagsmaður sem hverfur frá vinnu og hættir að greiða til aðildarfélags Landsmenntar, heldur áunnum réttindum sínum til styrks í 3 mánuði. Að 3 mánuðum liðnum fellur réttur hans niður.

Með umsókn skal skila

Frumriti reiknings sem er á nafni félagsmanns þar sem fram kemur nám/námskeiðslýsing, nafn og kennitala fræðsluaðila. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila til viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá viðkomandi skóla/fyrirtæki. Reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða.

Vegna umsóknar um styrk fyrir nám eða námskeið erlendis þarf að leggja fram frumrit reiknings á upprunalegu tungumáli og á ensku eða íslensku (ef frumrit reiknings er gefið út á ensku þá nægir það). Þá verður að vera sundurliðuð kostnaðarskipting, þ.e. ekki er greitt fyrir ferðir, gistingu og uppihald. Einnig þarf að fylgja með bankakvittun úr íslenskum banka sem staðfestir greiðslu í íslenskum krónum. Brýnt er að allur texti sé skýr og skilmerkilegur. Sé þýðing ekki fyrir hendi fæst ekki greiddur styrkur. Þetta á einnig við um nám/námskeið hjá erlendum vefsíðum.

Upphæðir endurgreiðslu

Fullur réttur í námsstyrk er 90% af reikningi en þó aldrei meira en 130.000,- á ári f.o.m. 1. jan. 2024 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem byrja eftir þann tíma.

Uppsafnaður réttur; aukinn styrkur til náms: Félagsmenn sem ekki hafa nýtt sér rétt sinn síðustu tvö ár eiga rétt á styrk allt að kr. 260.000,-  eða síðustu þrjú ár eiga rétt á allt að kr. 390.000,-  fyrir eitt samfellt nám eða námskeið samkvæmt nánari reglum sjóðsins. Uppsafnaður réttur skerðist ekki hafi félagsmaður fengið styrk undir kr. 50.000,- á tíma uppsöfnunar. Sá styrkur kæmi þó til frádráttar. Ferðakostnaður vegna náms getur að hámarki orðið kr. 130.000.-  sem hluti af kostnaði náms/námskeiðs í þessu tilviki. Greiðslur til sjóðsins þurfa að hafa borist sjóðnum að lágmarki í 30 mánuði af síðustu 36 mánuðum fyrir dagsetningu umsóknar. (síðasta breyting á reglum, 1. janúar 2024, gagnvart því námi sem hefst f.o.m. þeim tíma)

Ath. nýjar reglur taka gildi 1. jan.2024 og gilda gagnvart námi/námskeiðum sem byrja eftir þann tíma.

Raunfærnimat: Vegna kostnaðarþátttöku einstaklinga í raunfærnimati (félagsmenn aðildarfélaga SGS sem ekki tilheyra markhópi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins; þ.e.  fólki á vinnumarkaði sem ekki hefur lokið námi á framhaldsskólastigi), geta þeir sótt um almennan vegna þess.

Starfstengt netnám: Vegna netnámskeiða þarf námskeiðið að hafa skilgreint upphaf, endi og vera með leiðbeinanda. Ef um áskrift að vefsíðu/efnisveitu með starfstengdum námskeiðum/kennsluefni er að ræða, styrkir sjóðurinn að hámarki aðgang til 1 árs.

Styrkir vegna íslenskunáms: Félagsmenn sem hafa annað móðurmál en íslensku geta sótt um almennan styrk vegna íslenskunáms eftir mánaðar félagsaðild í aðildarfélagi Landsmenntar.

Réttur ellilífeyrisþega (félagsmenn aðildarfélaga SGS): Ellilífeyrisþegar (félagsmenn aðildarfélaga SGS) halda rétti sínum til einstaklingsstyrkja í allt að 24 mánuði frá því þeir hætta að vinna.  Þetta er í samhengi við réttindi þeirra sem eru á tímabundinni örorku og annað sbr. 5. lið í reglum um einstaklingsstyrki. (samþ. í mars 2012)

Ferða-og dvalarstyrkir í tengslum við nám/námskeið: Þeir einstaklingar sem þurfa að sækja styrkhæft nám/námskeið um langan veg innanlands eiga rétt á stuðningi við ferða- og dvalarkostnað. Um er að ræða einstaklingsstyrk og sótt er um á sérstöku eyðublaði. Styrkir eru afgreiddir af viðkomandi stéttarfélagi í umboði Landsmenntar. (tók fyrst gildi 1.jan.2013)

Reglur um sérstaka ferða-og dvalarstyrki:

  • Akstur 50% af almennu kílómetragjaldi eins og það er ákveðið hverju sinni skv. taxta ferðakostnaðarnefndar.
  • Ekki er tekið þátt í ferðakostnaði vegna aksturs sem er innan við 12 km frá námskeiðsstað eða skóla.
  • Varðandi akstur og flug er alltaf gert ráð fyrir að menn velji ódýrustu leiðina. Halda skal akstursdagbók sem er síðan skilað inn með umsókn.
  • Flug: Heimilt verði að niðurgreiða kostnað 90% af hverju flugfargjaldi en að hámarki kr. 130.000.- (Gildistími frá 1. jan. 2024)
  • Gisting: Heimilt verði að niðurgreiða hverja gistinótt á hótelum/gistiheimilum um að hámarki kr. 6.000.-.
  • Skila þarf með umsókn staðfestingu frá skóla/fræðsluaðila um þátttöku í námi/námskeiði.

Ferða-og dvalarstyrkir eru afgreiddir sér, en dragast frá hámarki einstaklingsstyrkja.

Áfrýjunarréttur: Ef félagsmaður telur sig eiga rétt á styrki til starfsmenntunar, en er hafnað um styrk af viðkomandi verkalýðsfélagi, þá getur félagsmaður vísað umsókn sinni til stjórnar Landsmenntar til afgreiðslu.

Breyting á starfsreglum

Reglur þessar geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni og var síðast breytt 1. janúar 2024.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei