Verklagsreglur

Allar umsóknir til Sjúkrasjóðs Stéttarfélags Vesturlands fara í gegnum Mínar síður á heimasíðu félagsins. Greitt er út úr sjóðnum vikulega. Til þess að eiga rétt á styrkjum þarf félagsfólk að hafa greitt til félagsins það gjald sem miðast við 100% starf eða hlutfallslega miðað við hlutastarf, í félagsgjöld í 6 mánuði af síðustu 24.

Reikningur skal dagsettur eftir að réttur félagsfólks til styrkja stofnast í sjóðnum. Ekki eru greiddir styrkir vegna reikninga sem verða til á þessu 6 mánaða ávinnslutímabili.

Greiðslukvittanir mega ekki vera eldri en 12 mánaða, miðað við að réttindi liggi fyrir þá. Vottorð vegna sjúkradagpeninga mega ekki vera eldri en 2 mánaða. Ef gögn skila sér ekki innan þriggja mánaða eftir að umsókn er stofnuð er henni eytt úr kerfinu og þarf þá að sækja aftur um eftir þann tíma.

Allar umsóknir sem falla beint undir reglugerð sjóðsins eru afgreiddar af starfsmönnum félagsins en ef upp koma vafaatriði er umsóknin lögð fyrir stjórn sjóðsins.

Stjórn sjóðsins getur krafist þess að umsækjandi leggi fram viðbótargögn, s.s. vegna tekna frá TR, eða öðrum, þegar sjúkradagpeningar eru afgreiddir.

Krefji stjórn sjóðsins umsækjanda um vottorð sem hann þarf að greiða fyrir skal sá kostnaður endurgreiddur.
Stjórn sjóðsins skal óska eftir staðfestingu frá launagreiðanda um að veikindaréttur hafi verið tæmdur þegar sótt er um sjúkradagpeninga, á sama hátt skal óskað eftir upplýsingum um launalaus leyfi vegna veikinda maka eða barna.

Eingöngu er tekið við greiðslukvittunum þar sem sjá má staðfestar færslur/greiðslur frá íslenskum bankareikningi/greiðslukorti til viðkomandi aðila. Sjúkrasjóður tekur ekki gildar greiðslukvittanir sem greiddar eru með peningum.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei