Ríkið og SGS semja á sömu nótum og aðrir!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

 
Samninganefnd Starfsgreinasambandsis fyrir hönd aðildarfélaga og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs skrifuðu undir kjarasamninga miðvikudaginn 1. júní.


 


Samninganefndin er mjög sátt með að hafa náð að tryggja fólki þær launahækkanir sem samið var um á almenna markaðnum.


 


Vert er að vekja athygli á því að samningurinn er tveimur mánuðum lengri en kjarasamningur SGS við SA en hann rennur út þann 31.mars 2014.


 


Launahækkanirnar árin 2012 og 2013 koma mánuði síðar en í samningi SGS við SA en á móti kemur að í lok samningstímans fá félagsmenn með aðild að þessum kjarasamningi 38 þúsund króna eingreiðslu


 


Samninginn í heild sinni er að finna hér
 


 
 
 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei