Fulltrúakjör á þing Alþýðusambands Íslands

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samkv. lögum Stéttarfélags Vesturlands skal viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við val fulltrúa á þing ASÍ. Félagið á rétt til að senda 3 fulltrúa á fundinn, sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu dagana 17. til 19. okt. 2012.


Framboðslistum, þar sem tilgreindir eru 2 aðalfulltrúar frá SGS-deildunum og 1 frá LÍV-deild og jafnmargir varafulltrúar, ásamt tilskyldum fjölda meðmæla fullgildra félagsmanna, skal skila á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands Sæunnargötu 2a, Borgarnesi, stílað á formann kjörstjórnar, Guðrúnu Helgu Andrésdóttur, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 1. okt.  2012.
 
      
      Borgarnesi, 24. sept. 2012


      Stéttarfélag Vesturlands


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei