Ráðstefna um hlutastörf og vaktavinnu

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir


Starfsgreinasamband Íslands boðar til ráðstefnu þann 12. janúar 2017 um lífsgæði og kjör starfsfólks í hlutastörfum og vaktavinnu. Sjónum verður beint að því hvort starfsfólk velur sér sjálft þessi störf og hvaða áhrif störf sem eru ekki með hefðbundinn vinnutíma hafa á lífsgæði fólks. Hvað getur starfsfólk gert til að draga úr streitu í vaktavinnu? Getur fólk valið að vinna fulla vinnu eða eru hlutastörf dulbúin kjaraskerðing? Hvernig eru kynjahlutföll meðal starfsfólks með óhefðbundinn vinnutíma? Hefur óhefðbundinn vinnutími áhrif á heilsu starfsfólks og þá hvernig? Þessum spurningum og fleiri verður velt upp á ráðstefnunni en dagskráin er blanda af reynslusögum starfsfólks, kynning á niðurstöðum nýlegra rannsókna og umfjöllun sérfræðinga um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum óhefðbundins vinnutíma. Ráðstefnan fer fram á Hotel Natura og hefst hún klukkan 12:30 og stendur til 16:30.


Allar frekari upplýsingar um ráðstefnuna og skráningu má finna hér ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að skrá sig til leiks.


 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei