Mótmæli á Austurvelli kl. 13:00 í dag

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Í dag klukkan 13 verður efnt til mótmæla fyrir framan Alþingishúsið vegna aðgerðarleysis stjórnvalda í málefnum heimilanna. Frá Austurvelli verður síðan gengið að Stjórnarráðinu.  ASÍ hvetur almenning til að taka þátt enda þolinmæðin gagnvart aðgerðarleysi stjórnvalda þrotin.


Í tilkynningu frá samtökunum Nýir tímar segir m.a.:  „Við viljum minna stjórnvöld á að heimili landsmanna eru að brenna upp í skuldum og að sú “Skjaldborg” sem slá átti um heimilin sé hvergi sjáanleg.


Almenningur í landinu hefur þurft að sýna ótakmarkaða þolinmæði gagnvart stjórnvöldum sem á móti sýna landsmönnum enga vægð þegar að innheimtuaðgerðir eru annars vegar.“


 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei