Samninganefnd ASÍ staðfestir endurskoðun kjarasamninga

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þessi frétt er tekin af vef ASÍ:


 


13. júlí 2009
Fulltrúar landssambanda og félaga með beina aðild að ASÍ hafa í dag tekið afstöðu til samkomulags ASÍ og SA frá 25. júní s.l. eftir að hafa leitað eftir afstöðu samninganefnda sinna aðildarfélaga. Í ljós hefur komið að víðtæk samstaða er innan Alþýðusambands Íslands um bæði niðurstöðu samningsaðila sem og gerð stöðuleikasáttmálans milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar.


 


Í ljósi þess hefur samninganefnd ASÍ staðfest samkomulagið frá 25. júní 2009 og tilkynnt Samtökum atvinnulífsins þá niðurstöðu.


Samningar halda því gildi sínu og kauptaxtar munu hækka um sem nemur kr. 6.750 eða kr. 8.750 frá og með 1. júlí s.l. Samkvæmt samkomulaginu munu samningsaðilar meta framvindu þeirra ákvæða sem kveðið er á um í stöðuleikasáttmálanum fyrir lok október n.k. og taka þá endanlega afstöðu til þess tíma sem eftir er af kjarasamningunum frá 17. febrúar 2008.



 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei