Kjarasamningur við Elkem Ísland samþykktur

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning sem Stéttarfélag Vesturlands ásamt öðrum stéttarfélögum gera við Elkem Ísland á Grundartanga er lokið. Þátttaka í atkvæðagreiðslu var tæp 72% og var samningurinn samþykktur með rétt tæpum 60% greiddra atkvæða.

Á kjörskrá voru 103

Þeir sem kusu voru 74 eða 71,84%

Af þeim sem kusu sögðu 44 já eða 59,46%

Af þeim sem kusu sögðu 29 nei eða 39,19

Auður og ógildir voru 1 eða 1,35%

Samningurinn telst því samþykktur.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei