Stéttarfélag Vesturlands ásamt FIT, VR, RSÍ og VFLA semja við Norðurál

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Ágætu félagar

Í  gær þann 13.október 2020 var skrifað undir kjarasamning  5 stéttarfélaga við Norðurál á Grundartanga.

Samningurinn gildir frá 1. janúar 2020 til 31.12. 2024. Launahækkanir samkvæmt samningnum eru blanda af launahækkunum samkvæmt Lífskjarasamningnum og samkvæmt launavísitölu. Farið verður í rafræna atkvæðagreiðslu um samninginn – kynningarefni verður sameiginlegt og birt með rafrænum hætti.

 

Meðfylgjandi mynd sýnir þá sérstöku stemmingu sem ríkti í húsakynnum ríkissáttasemjara

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei