Þann 4. febrúar nk. verður haldin vinnuverndarráðstefna Vinnueftirlitsins og VÍS í aðalskrifstofu VÍS, á 5. hæð í Ármúla 3. Boðið verður upp á mörg áhugaverð erindi en aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis. Skráning fer fram á heimasíðu VÍS, www.vis.is.
Opin ráðstefna VÍS og Vinnueftirlitsins 2010
Forvarnir í fyrirrúmi
Tími: Fimmtudaginn 4. febrúar 2010, kl. 13:00 – 16:00
Staður: Aðalskrifstofa VÍS, Ármúli 3, 5. hæð. Aðgangur ókeypis. Skráning á heimasíðu VÍS, www.vis.is.
Fundarstjóri: Þórunn Sveinsdóttir, deildarstjóri hjá Vinnueftirlitinu
Dagskrá:
13.00 Setning ráðstefnunnar og kynning samstarfs VÍS og VER – Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS
13.10 Áhættumat fyrirtækja – Guðmundur Ingi Kjerúlf, verkefnastjóri hjá Vinnueftirlitinu – Hvað er áhættumat?
13.30 Áhættumat og forvarnir sveitarfélaga – Einar G. Magnússon, verkefnastjóri áhættumats hjá Rangárþingi eystra
Skipulag og framkvæmd áhættumats – reynsla okkar eftir fyrstu umferð
13.50 Atvikaskráning hjá Strætó bs. – Steindór Steinþórsson, deildarstjóri akstursdeildar / Bergdís Eggertsdóttir, verkefnastjóri
Fyrstu skrefin og sjáanlegur ávinningur
14.10 Alcan – atvikaskráning – Reynir Guðjónsson, öryggisfulltrúi.
Langtíma ávinningur og árangur atvikaskráningar í álveri
14.30 Kaffi og meðlæti
15.00 Áhættumat og slys hjá bændum – Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu – Áhættumat er leiðin
15.10 Áhættumat á bifreiðaverkstæði – Bjarki Harðarson, forstjóri Bílson
Undirbúningur og gerð áhættumats
15.20 Áhættumat á vélaverkstæði – Kári Pálsson, forstjóri Hamars.
Framkvæmd áhættumats, ávinningur og yfirfærsla á aðrar starfstöðvar
15.30 Forvarnarverðlaun VÍS
15.50 Samantekt á ráðstefnu og áherslur Vinnueftirlitsins 2010 – Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins
16.00 Ráðstefnulok