Forvarnir í fyrirrúmi – Vinnuverndarráðstefna

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þann 4. febrúar nk. verður haldin vinnuverndarráðstefna Vinnueftirlitsins og VÍS í aðalskrifstofu VÍS, á 5. hæð í Ármúla 3. Boðið verður upp á mörg áhugaverð erindi en aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis. Skráning fer fram á heimasíðu VÍS, www.vis.is.


 


Opin ráðstefna VÍS og Vinnueftirlitsins 2010
Forvarnir í fyrirrúmi


 


Tími: Fimmtudaginn 4. febrúar 2010, kl. 13:00 – 16:00


Staður: Aðalskrifstofa VÍS, Ármúli 3, 5. hæð. Aðgangur ókeypis.  Skráning á heimasíðu VÍS, www.vis.is.


Fundarstjóri: Þórunn Sveinsdóttir, deildarstjóri hjá Vinnueftirlitinu


 


Dagskrá:


13.00  Setning ráðstefnunnar og kynning samstarfs VÍS og VER – Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS


13.10  Áhættumat fyrirtækja – Guðmundur Ingi Kjerúlf, verkefnastjóri hjá Vinnueftirlitinu – Hvað er áhættumat?


13.30  Áhættumat og forvarnir sveitarfélaga – Einar G. Magnússon, verkefnastjóri áhættumats hjá Rangárþingi eystra
Skipulag og framkvæmd áhættumats – reynsla okkar eftir fyrstu umferð


13.50  Atvikaskráning hjá Strætó bs. – Steindór Steinþórsson, deildarstjóri akstursdeildar / Bergdís Eggertsdóttir, verkefnastjóri
Fyrstu skrefin og sjáanlegur ávinningur


14.10  Alcan – atvikaskráning – Reynir Guðjónsson, öryggisfulltrúi.
Langtíma ávinningur og árangur atvikaskráningar í álveri


14.30  Kaffi og meðlæti


15.00  Áhættumat og slys hjá bændum – Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu – Áhættumat er leiðin


15.10  Áhættumat á bifreiðaverkstæði – Bjarki Harðarson, forstjóri Bílson
Undirbúningur og gerð áhættumats


15.20  Áhættumat á vélaverkstæði – Kári Pálsson, forstjóri Hamars.
Framkvæmd áhættumats, ávinningur og yfirfærsla á aðrar starfstöðvar


15.30  Forvarnarverðlaun VÍS


15.50  Samantekt á ráðstefnu og áherslur Vinnueftirlitsins 2010 – Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins


16.00  Ráðstefnulok
 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei