Föstudaginn 5. júní var gert samkomulag milli iðnaðarmannasamfélagsins og SA um samningsramman. Í samkomulagið tók til launabreytinga, samningstíma og breytinga á kauptöxtum. Einnig var samkomulag um að fresta verkfalli sem átti að koma til framkvæmda 10. júní s.l til kl. 24.00 þann 22. júní. Um þetta var engin ágreiningur milli iðnaðarmannafélaganna.
Samninganefnd Samiðnar var einróma sammála um að vinna á forsendum samkomulagsins og freista þessa að ljúka samningum á forsendum samkomulagsins og leggja niðurstöðuna í dóm félagsmanna.
Samninganefndin hefur unnið markvist að því að láta reyna á hvert hægt sé að ljúka samningi og niðurstaða lægi fyrir áður en til verkfall kæmi. Á fundi með SA í gærkveldi stóðu mál þannig að fyrir liggja drög að samningi og ef samkomulag næst um þau ágreinismál sem út af standa er stefnt að því undirrita nýjan kjarasamning á mánudag.
Engin ákvörðun hefur verið tekin um afboðun eða frestun verkfalls sem hefst að öllu óbreyttu aðfaranótt þann 23. júní.