Nú stendur yfir póstatkvæða-greiðsla vegna kjarasamninga við ríkið og sveitarfélögin. Póstleggja þarf atkvæðaseðla í síðasta lagi 7. ágúst til að þeir nái örugglega í talningu sem fer fram þann 14. ágúst á skrifstofu Starfsgreinasambands Íslands. Stéttarfélag Vesturlands hvetur félagsmenn sína að nýta sér atkvæðisrétt sinn. Á meðfylgjandi mynd eru Gunnar Björnsson formaður samninganefndar ríkisins og Signý Jóhannesdóttir formaður Stétt Vest og …
Vetrarleigan hefst í orlofshúsunum 4. sept.
Frá 4. sept. er hægt að leigja staka daga eða helgar í orlofshúsum og íbúðum Stéttarfélags Vesturlands. Frá 4. sept. er hægt að leigja staka daga eða helgar í orlofshúsum og íbúðum Stéttarfélags Vesturlands. Félagið sér sjálft um að leigja íbúðirnar á Akureyri og í Reykjavík, eins sumarbústaðina í Ölfusborgum og í Húsafelli. Illugastaðir eru leigðir af umsjónamanni orlofsbyggðarinnar þar.
Samninganefnd ASÍ staðfestir endurskoðun kjarasamninga
Þessi frétt er tekin af vef ASÍ: 13. júlí 2009Fulltrúar landssambanda og félaga með beina aðild að ASÍ hafa í dag tekið afstöðu til samkomulags ASÍ og SA frá 25. júní s.l. eftir að hafa leitað eftir afstöðu samninganefnda sinna aðildarfélaga. Í ljós hefur komið að víðtæk samstaða er innan Alþýðusambands Íslands um bæði niðurstöðu samningsaðila sem og gerð …
Kjarasamningum við ríki og sveitarfélög lokið
Starfsgreina- samband Íslands hefur skrifað undir kjarasamninga bæði við ríkið fyrir hönd fjármálaráðherra og við Launanefnd sveitarfélaga fyrir hönd 76 sveitarfélaga. Samningurinn við ríkið kláraðist að kvöldi 3. júlí og það var rétt fyrir kl. 19:00 þriðjudaginn 7. júlí sem skrifað var undir við Launanefnd sveitarfélaga. Báða samningana er hægt að nálgast á heimasíðu www.sgs.is . Formaður Stéttarfélags Vesturlands er sviðstjóri sviðs opinberra starfsmanna …
Fundur stjórar- trúnaðaráðs og trúnaðarmanna
Stjórn Stéttarfélags Vesturlands hefur ákveðið að boða ofangreinda aðila til fundar þriðjudaginn 7. júlí kl. 20:00, í Sæunnargötu 2a. Á fundinum mun Ólafur Darri Andrason kynna niðurstöður varðandi samkomulag um frestun á endurskoðun kjarasamninga ASÍ og SA, ásamt svokölluðum stöðugleikasáttmála. Stjórnin leggur til að afstaða Stétt Vest verði tekin á fundinum. Kjarasamningar við ríki og sveitarfélög verða kynntir, verði …
Tvær lausar vikur í ágúst á Hafursá
Vikurnar 14. ágúst til 21. og frá 21. til 28. ágúst eru lausar í sumarhúsinu að Hafursá á Héraði.
Ný þjónusta hjá Stéttarfélagi Vesturlands
Félagsmönnum býðst nú íbúð til leigu í 101-Reykjavík.Um er að ræða 3ja herbergja íbúð að Ránargötu 11, eða í hjarta höfuðborgarinnar.Húsnæðið er fullbúið og ætlað til skammtímaleigu hvort sem um er að ræða orlofsdvöl eða vegna einhverra erinda í borginni s.s. vegna læknisþjónustu. Gistiaðstaða verður fyrir 4-6. Hægt er að fá íbúðina leigða frá 3. júlí nk. Virka daga er …
Sumarferð Stéttarfélags Vesturlands frestað til 11. júlí
Sumarferð Stéttarfélags Vesturlands sem fara átti laugardaginn 27. júníer frestað til 11. júlí.Skoðaðir verða sögustaðir, náttúra og auðlindir í nágrenni höfuðborgarinnar.Farið verður út í Viðey og eyjan skoðuð undir leiðsögn Elísabetar Ólafsdóttur, snædd súpa áður en farið verður í land.Ekið verður að Gljúfrasteini og hús skáldsins skoðað. Áð um miðjan dag við Hafravatn, síðan verður Hellisheiðarvirkjun skoðuð. Farin verður Nesjavallaleið, kvöldverður snæddur …
Formannafundur um stöðugleikasáttmála
Boðað er til fundar formanna aðildarfélaga ASÍ um stöðuna í viðræðum við atvinnurekendur og stjórnvöld um kjaramálin og stöðugleikasáttmála. Fundurinn verður á Grand hótelinu við Sigtún fimmtudaginn 11. júní og hefst kl. 13:00.Mikilvægt er að sem flestir sjái sér fært að mæta.
Viltu eyða sumarfríinu austur á Héraði í júlí eða ágúst?
Sumarbústaðurinn að Hafursá á Héraði er laus frá 3. júlí og næstu fjórar vikur, eða til 31. júlí. Einnig eru tvær vikur lausar í ágúst, frá 14. ágúst til 28. ágúst. Staðhættir:Hafursá er gamalt bóndabýli sem stendur við útjaðar gamla skógarins með útsýni inn yfir skóginn, Lagarfljótið og inn til Snæfells. Um svæðið eru margar og skemmtilegar gönguleiðir bæði upp til fjallsins …