Þann 15.janúar var opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna. Ráðherra velferðarmála veitir styrkina, sem veittir hafa verið ár hvert síðan 1991, en umsjón með styrkveitingum hefur ráðgjafi Vinnumálastofnunar á Sauðárkróki. Konur sem hafa góðar viðskiptahugmyndir eða reka fyrirtæki og eru að þróa nýjar vörur eða þjónustu, geta sótt um styrki sem geta numið allt að 2 milljónum króna. …
Stjórn og trúnaðarráð boðað til áríðandi fundar
Stjórn og trúnaðarmannaráð Stéttarfélags Vesturlands er boðað til áríðandi fundar miðvikudaginn 19. janúar kl. 20:00, í Alþýðuhúsinu Sæunnargötu 2 a í Borgarnesi. Trúnaðarmenn á vinnustöðum eru einnig boðaðir til fundarins. Tilefnið er vísun samninganefndar SGS á kjaradeilu sambandsins við SA til ríkissáttasemjara. Einnig verður fjallað um samræmda launastefnu og hvað hún felur í sér.
Kjaradeilu SGS við SA vísað til ríkissáttasemjara
Á fundi samninganefndar Starfsgreinasambands Íslands(SGS) f.h. aðildarfélaga sinna annarra en Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis sem haldinn var í gær, var samþykkt að vísa kjaradeilu SGS við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Að mati samninganefndarinnar hefur hægt miðað og því sé mikilvægt að þrýsta á um markvissari viðræður sem leiddar verði af ríkissáttasemjara ef …
Ríkisstjórnin sniðgengur kröfur ASÍ um lagabreytingar
Það blæs ekki byrlega varðandi samvinnu ríkisstjórnar og ASÍ fyrir komandi kjaraviðræður. Í síðustu viku kom í ljós að frumvarp sem hafði verið í smíðum í félagsmála-ráðuneytinu frá því í júní varðandi breytingar á lögum um atvinnu-leysistryggingar, og unnið var með aðkomu aðila vinnumarkaðarins, hafði tekið veigamiklum breytingum. Án nokkurs samráðs. Upphaflega frumvarpið hafði það að markmiði að auka …
Íbúðin í Ránargötu laus um helgina
Vegna forfalla er íbúð félagsins að Ránargötu 11 í Reykjavík laus helgina 5. -7. nóvember. Fyrstur kemur fyrstur fær!
Skrifstofa Stéttarfélags Vesturlands
Skrifstofa Stéttarfélags Vesturlands lokar kl. 14:25 í dag mánudaginn 25. október vegna Kvennafrídagsins. Skrifstofa Stéttarfélags Vesturlands lokar kl. 14:25 í dag mánudaginn 25. október vegna Kvennafrídagsins. Stéttarfélag Vesturlands vill með því hvetja aðra atvinnurekendur á félagssvæði sínu til að gera slíkt hið sama.
Félagsmenn: Til hamingju með Kvennafrídaginn!
ASÍ og önnur samtök launafólks á íslenskum vinnumarkaði hvetja félagsmenn aðildar-félaga sinna um allt land til virkrar þátttöku í viðburðum í tilefni Kvennafrídagsins, sem er í dag mánudaginn 25. október. Í sameiginlegri yfirlýsingu samtakanna segir að samtök launafólks hafi frá upphafi barist fyrir bættum lífskjörum allra landsmanna, jöfnum rétti og jöfnum tækifærum á vinnumarkaði og þannig lagt sitt af …
Ályktanir opinbera sviðs SGS um niðurskurð o.fl.
Fundur sviðs starfsmanna hjá ríki og sveitarfélögum, sem eru innan SGS hélt fund til undirbúnings kjara-samninga sl. mánudag þar sem farið var yfir efnahagsstöðuna, kjaramálin og væntanlegan flutning á málefnum fatlaðra yfir til sveitarfélaganna, en kjarasamningarnir við ríki og sveitarfélög eru lausir 1. desember n.k. Á fundinum voru m.a. samþykktar tvær ályktanir, annars vegar um málefni fatlaðra þar sem væntanlegum flutningi á …
Húsafell
Nú er orlofshúsið í Húsafelli laust næstu helgi. Hví ekki að skella sér í haustlitaferð í náttúruparadísina í Húsafelli? Nú er orlofshúsið í Húsafelli laust næstu helgi. Hví ekki að skella sér í haustlitaferð í náttúruparadísina í Húsafelli?
Kynningarfundur í Símenntun
Kynningarfundur um námsleiðina: Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum, þriðjudaginn 14. september kl. 18.30 í húsnæði Símenntunar, Bjarnarbraut 8. Látið ykkur ekki vanta á þennan fróðlega fund! Kynningarfundur um námsleiðina: Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum, þriðjudaginn 14. september kl. 18.30 í húsnæði Símenntunar, Bjarnarbraut 8. Látið ykkur ekki vanta á þennan fróðlega fund!
