Dagana 11.-22. júlí nk. fer fram atkvæðagreiðsla vegna nýs kjarasamnings SGS við Samband íslenskra sveitarfélaga, sem undirritaður var þann 1. júlí sl. Í þetta skiptið verður atkvæðagreiðslan með rafrænum hætti og fer hún fram á vef Starfsgreinasambands Íslands . Allir kosningabærir aðilar eiga nú að hafa fengið sent bréf þar sem má m.a. finna leiðbeiningar um rafrænu atkvæðagreiðsluna. Með bréfinu fylgir …
Orlofssjóður Stétt. Vest. vill taka á leigu sumarhús!
Orlofssjóður Stéttarfélags Vesturlands vill taka á leigu sumarhús á Vesturlandi, helst í Húsafelli eða Skorradal.Verið er að leita eftir nýju eða nýlegu húsi, 60 – 80 m2 með stórum sólpalli og heitum potti.Húsið þarf að vera með gistiaðstöðu fyrir 6-8 manns og æskilegt að það sé fullfrágengið bæði að utan og innan, gjarnan með búslóð. Við leitum eftir vandaðri og snyrtilegri …
Lítið bókað í Ásholtinu í sumar!
Orlofsíbúð Stéttarfélags Vesturlands að Ásholti 2 í Reykjavík er frekar lítið bókuð nú í sumar. Íbúðin hefur verið í mikilli notkun þar til síðustu daga. Nú er svo komið að íbúðin er laus frá 8. júlí til 21. júlí og síðan er hún aftur laus frá 23. júlí til 15. ágúst. Hvernig væri að grípa nú tækifærið og gerast ferðamaður í borginni …
Samið við samband íslenskra sveitarfélaga
Í nýjum aðfarasamningi sem undirritaður var í vikunni milli Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) eru launahækkanir á tímabilinu frá tæplega 10.000 kr. upp í 28.000 kr. Mismunandi er eftir starfahópum og eins starfsaldri hver hækkunin er. Fjölmennasti hópurinn er að hækka um liðlega 20.000 kr. á tímabilinu eða ríflega 8%. Í þessum hópi eru m.a. heimaþjónusta, skólaliðar …
Krafa um sömu leiðréttingar og aðrir hafa fengið!!!
Hægt hefur miðað í viðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga en kjarasamningurinn rann út 1. maí síðast liðinn. Starfsgreinasamband Íslands fer með umboð Stéttarfélags Vesturlands og 12 annarra félaga innan sambandsins. Formaður Stétt Vest leiðir þann hóp eins og í mörgum fyrri samningum við sveitarfélögin. Líkt og í fyrri samningum hafa Flóafélögin samflot um kjaraviðræður. Það eru þessi 16 SGS félög …
Laus vika í Furulundi 20.-27. júní
Af óviðráðanlegum orsökum losnaði vikan 20.-27. júní í Furulundi á Akureyri. Fyrstur kemur fyrstur fær!
Laus vika í Nónhvammi í Grímsnesi!
Enn er laus næstkomandi vika í Nónhvammi í Grímsnesi, hér má sjá upplýsingar um húsið í Nónhvammi, vikan sem um ræðir er frá 13. – 20. júní. Fyrstur kemur fyrstur fær!
Enn eru lausar vikur í orlofshúsum og íbúð Stéttvest
Nú er fyrri og seinni úthlutun orlofshúsa og íbúða Stéttarfélags Vesturlands lokið. Í meðfylgjandi skjali er hægt að sjá hvaða vikur eru enn lausar, það sem er skyggt er farið en hvítir reitir tákna lausar vikur. Nú gildir fyrstur kemur fyrstur fær og þá er um að gera að skella sér á lausu vikurnar sem allra fyrst! Vinsamlegast hafið samband …
Aðalfundur Stéttarfélags Vesturlands 14. maí
Aðalfundur Stéttarfélags Vesturlands verður haldinn 14. maí nk. kl. 20:00. Hægt er að finna dagskrá fundarins hér Laganefnd félagsins hefur lagt til breytingar á 12. og 14. grein laga félagsins. Hægt er að finna þær hér Með breytingum þessum er verið að skerpa á ákvæðum varðandi kosningu í stjórn og hvenær nýkjörnir formenn deilda taka sæti í stjórninni. Einnig eru …
Ertu nokkuð að klúðra sumarfríinu?
Þeir félagsmenn sem fengu úthlutað sumarbústað í fyrstu umferð þurfa að hafa greitt kröfuna í heimabankanum, fyrir mánudaginn 12. maí. Þann dag munum við úthluta þeim vikum sem verða ógreiddar. Þá hafa menn tíma til 23. maí til að greiða eftir aðra úthlutun. Eftir 23. maí gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær vegna þeira vikna sem þá verða eftir. Stéttarfélag …