Spurningakönnun vegna komandi kjarasamninga

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands sendi í síðustu viku spurningakönnun á 130 manna slembiúrtak úr félagatali sínu, þar sem félagsmennirnir eru spurðir hvað þeim þyki mikilvægast að verði í kröfugerð félagsins við næstu kjarasamningagerð. Spurningakönnunina er hægt að gera rafrænt með því að smella hér og vista word skjalið inn á harða diskinn, fylla hana svo út og senda á stettvest@stettvest.is  

Ölfusborgir lausar um helgina v. forfalla

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Orlofshús Stéttarfélagsins í Ölfusborgum er laust um helgina vegna forfalla. Til að bóka þarf að hafa samband við skrifstofu Stéttvest í s. 430 0430 eða í tölvupósti á stettvest@stettvest.is Fyrstur kemur fyrstur fær!   

Dagskrár 1. maí hátíðahalda Stéttarfélags Vesturlands

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands stendur að venju að hátíðahöldum á 1. maí í Borgarnesi ásamt Kili, stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu. Hátíðin í ár verður haldin í Hjálmakletti og hefst hún kl. 14:00. Dagskrá hátíðarinnar má sjá hér.   Stéttarfélag Vesturlands stendur einnig fyrir hátíðahöldum í Búðardal ásamt SDS – Starfsmannafélagi Dala- og Snæfellsnessýslu. Hátíðin í Dölum verður í Leifsbúð og hefst kl. 15:00. …

Aðalfundir deilda Stéttarfélags Vesturlands

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Aðalfundir deilda Stéttarfélags Vesturlandsverða haldnir þriðjudaginn 9. april kl. 20.00í Alþýðuhúsinu, Sæunnargötu 2a.Deildirnar eru: Iðnsveinadeild, Iðnaðar- mannvirkja- og stóriðjudeild, Matvæla – flutninga- og þjónustudeild, Deild verslunar- og skrifstofufólks og Deild starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögum.Dagskrá:  1. Venjuleg aðalfundarstörf deildanna2.  Guðni Gunnarsson formaður ASÍ –UNG  ræðir um störf ungs fólks í   verkalýðshreyfingunni3. Nýjar leiðirí húsnæðismálum, Henný Hinz  hagfræðingur kynnir danska húsnæðiskerfið4. …

Allt að 35% verðmunur á páskaeggjum

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Algengast er að 20-30% verðmunur sé á hæsta og lægsta verði á páskaeggjum milli matvöruverslana að því er fram kemur í nýrri verðkönnun sem Verðlagseftirlit ASÍ gerði í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Bónus var oftast með lægsta verðið á þeim eggjum sem skoðuð voru en Samkaup-Úrval og Iceland voru oftast með hæsta verðið. Flest páskaeggin í könnuninni voru fáanleg …

Orlofsblað Stéttarfélags Vesturlands 2013 komið út!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Nú ætti orlofsblað Stéttarfélagsins að vera að detta inn um bréfalúgur félagsmanna. Kennir þar ýmissa grasa og eitthvað er um nýjungar í framboði orlofskosta. Hægt er að lesa blaðið hér, og umsóknar-eyðublað er hægt að nálgast hér.    

Fundur ASÍ og Stéttarfélaga á Vesturlandi – 20. mars!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Kaupmáttur – atvinna – velferð! Alþýðusamband Íslands boðar til fundar á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi, miðvikudaginn 20. mars kl. 19:30. Fundurinn er haldinn í samráði við stéttarfélögin á Vesturlandi. Um er að ræða einn af átta fundum, sem haldnir eru um land allt þessa dagana. Fjallað verður um stöðu kjaramála og kaupmáttar (baráttu við verðbólguna), sókn í atvinnumálum á …

Furulundur Akureyri laus um páskana v. forfalla

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Íbúð Stéttarfélags Vesturlands í Furulundi var að losna um páskana vegna forfalla. Hafið samband við skrifstofu Stéttvest í s: 430 0430 eða með tölvupósti á stettvest@stettvest.is   Fyrstur kemur fyrstur fær að fara á skíði um páskana!   

Vertu á verði! – rjúfum vítahring verðbólgunnar

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Aðildarfélög ASÍ hefja í dag átak gegn verðhækkunum undir yfirskriftinni – Vertu á verði. Almenningur og atvinnulífið eru hvött til að taka höndum saman og rjúfa vítahring verðbólgunnar. Átakinu er ætlað að veita fyrirtækjum og stofnunum aðhald í verðlagsmálum og vekja neytendur til aukinnar vitundar.   Sendu ábendingar um verðhækkanir á – www. vertuaverdi.is Á heimasíðu átaksins www.vertuaverdi.is geta allir …