Hvað hafa Hagkaup, Kostur, Nóatún og Víðir að fela?

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Verslanir Hagkaups, Kosts, Nóatúns og Víðis neita allar að veita neytendum eðlilegar og sjálfsagðar upplýsingar um verðlag í verslunum sínum  með því að vísa verðtökufólki frá Verðlagseftirliti ASÍ út úr verslunum sínum. Ástæða er til þess að vara neytendur við að versla í þessum verslunum því ætla má að þær leiti skjóls til verðhækkana í því að útiloka fulltrúa neytenda …

Opinberir aðilar hækka verðbólgu

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Frétt af vef ASÍ. Ríki og sveitarfélög hafa á síðustu árum aukið álögur á heimilin með ítrekuðum hækkunum á gjaldskrám og neyslusköttum. Þessar hækkanir skila sér beint út í verðlag og valda aukinni verðbólgu. Frá árinu 2008 hefur opinber þjónusta hækkað um ríflega 35% auk þess sem auknar álögur á eldsneyti, áfengi og tóbak hafa valdið um þriðjungs hækkun á …

Þeim fjölgar sem leggjast gegn uppsögn samninga

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þessa dagana berast fréttir af fundarhöldum samninganefnda landssambanda og einstakra stéttarfélaga sem skrifuðu undir kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins 5. maí 2011. Í samningnum er endurskoðunarákvæði sem miðast við 1. febrúar 2013. Þar eru tilgreindir nokkrir mælikvarðar sem skoða þarf fyrir 21. janúar 2013. Sérstök forsendunefnd metur hvort forsendur standast og síðan er það samninganefnd ASÍ sem gengur endanlega frá því …

Félagsfréttir Stéttarfélags Vesturlands koma út í dag

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Fréttabréf Stéttarfélags Vesturlands er komið glóðvolgt úr prentun og verður borið út í hvert hús á félagssvæðinu í dag/morgun auk þess á lögheimili þeirra félagsmanna sem búa utan svæðis. Hægt er að nálgast Félagsfréttirnar á pdf formi hér á vefnum með því að smella á myndina.   

Greiðum dagpeninga og styrki fyrir jól!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Greiðsla dagpeninga og styrkja úr Sjúkrasjóði og fræðslusjóðum vegna desembermánaðar fer fram 21. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.Skila þarf gögnum til félagsins í síðasta lagi kl. 16:00 fimmtudaginn 20. desember nk. til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2013.  Starfsmenn  

Orlofshúsið í Húsafelli laust um helgina vegna forfalla!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Orlofshús Stéttarfélagsins við Kiðárskóga í Húsafelli er laust um komandi helgi vegna forfalla. Þá gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær um þennan umsetna dvalarstað okkar. Hægt er að panta í síma 430 0430 eða með tölvupósti á stettvest@stettvest.is  

Hver er desemberuppbótin árið 2012?

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samkvæmt þeim kjarasamningum, sem Stéttarfélag Vesturlands er aðili að, ber að greiða launafólki desemberuppbót fyrir árið 2012, sem hér segir: Starfsfólk sveitarfélaga, samningur SGS og SNS,                                                                          kr.   78.200       Verslunar- og skrifstofufólk, samningur LÍV og SA,     57.300  Verkafólk, samningur SGS og SA,                             50.500 Iðnaðarmenn, samningar Samiðnar og SA,                50.500 Samningar SGS við ríkið                                          50.500Norðurál ehf., Hvalfjarðarsveit                                 146.522Elkem hf., …

Íbúðin í Furulundi og hús í Ölfusborgum laust!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Íbúð Stéttarfélags Vesturlands við Furulund á Akureyri er laus um helgina. Einnig er orlofshúsið í Ölfusborgum laust og gildir um báða kostina að fyrstur kemur fyrstur fær. Hafið samband við skrifstofu í síma 430 0430 eða í tölvupósti á stettvest@stettvest.is til að bóka.  

Látið þið lífeyrissparnaðinn okkar vera!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stjórn Stéttarfélags Vesturlands samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum þann 27. nóvember 2012:   Stjórn Stéttarfélags Vesturlands styður eindregið ályktun miðstjórnar ASÍ frá 14. nóvember sl. þar sem skattlagningu á lífeyrisréttindi almenns launafólks er mótmælt. Félagið skorar á þá lífeyrissjóði sem félagsmenn þess eiga aðild að, að taka þátt í að skoða hvort forsendur eru fyrir því að fá þessari …