Íbúðin í Furulundi og hús í Ölfusborgum laust!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Íbúð Stéttarfélags Vesturlands við Furulund á Akureyri er laus um helgina. Einnig er orlofshúsið í Ölfusborgum laust og gildir um báða kostina að fyrstur kemur fyrstur fær. Hafið samband við skrifstofu í síma 430 0430 eða í tölvupósti á stettvest@stettvest.is til að bóka.  

Látið þið lífeyrissparnaðinn okkar vera!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stjórn Stéttarfélags Vesturlands samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum þann 27. nóvember 2012:   Stjórn Stéttarfélags Vesturlands styður eindregið ályktun miðstjórnar ASÍ frá 14. nóvember sl. þar sem skattlagningu á lífeyrisréttindi almenns launafólks er mótmælt. Félagið skorar á þá lífeyrissjóði sem félagsmenn þess eiga aðild að, að taka þátt í að skoða hvort forsendur eru fyrir því að fá þessari …

Algengustu bökunarvörur hækka umtalsvert milli ára

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Þær bökunarvörur sem verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á þann 13. nóvember sl. hafa hækkað í verði frá sambærilegri könnun sem gerð var í nóvember í fyrra hjá Bónus, Krónunni, Nettó, Fjarðarkaupum, Hagkaupum og Nóatúni. Áberandi eru miklar verðhækkanir í öllum vöruflokkum hjá öllum verslunum. Vinsæl bökunarvara eins og Ljóma smjörlíki hefur hækkað um 12-18%, Pillsbury hveiti hefur hækkað um 8-20% …

Skrifstofa Stéttarfélagsins lokuð hluta föstudags!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Föstudaginn 16. nóvember verður skrifstofa Stéttarfélags Vesturlands lokuð frá kl. 9:45 til kl.15:15. Starfsmenn félagsins verða á samráðsfundi hjá Vinnumálastofnun Vesturlands á Akranesi. Félagsmenn eru beðnir velvirðingar ef þessi lokun veldur vandkvæðum. Bent er á að ef hringt er í síma formanns 894-9804 verður haft samband til baka, strax og tækifæri gefst. Starfsmenn  

Íbúðin í Reykjavík laus um helgina!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Íbúð Stéttarfélagsins við Ásholt í Reykjavík losnaði af óviðráðanlegum orsökum um helgina. Skelltu þér í skemmtilega helgarferð í höfuðstaðinn. Fyrstur kemur fyrstur fær!  

Mikill verðmunur á umfelgun

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 24 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið sl. mánudag.Mestur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti á jeppa (t.d. Mitshubishi)  með 18″ stálfelgum (265/60R18) sem var ódýrust á 7.000 kr. hjá Nýbarða en dýrust á 13.398 kr. hjá Sólningu, verðmunurinn var 6.398 kr. eða 91%. Fyrir álfelgur af sömu stærð er …

Mikill verðmunur á umfelgun

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 24 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið sl. mánudag.Mestur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti á jeppa (t.d. Mitshubishi)  með 18″ stálfelgum (265/60R18) sem var ódýrust á 7.000 kr. hjá Nýbarða en dýrust á 13.398 kr. hjá Sólningu, verðmunurinn var 6.398 kr. eða 91%. Fyrir álfelgur af sömu stærð er …

Iceland aftur með lægsta verðið

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Verslunin Iceland Engihjalla var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum, stórmörkuðum og klukkubúðum víðsvegar um landið mánudaginn 1. október. Hæsta verðið var oftast að finna í verslun 10/11 Laugavegi eða í um helmingi tilvika, en eins og áður sagði var lægsta verðið oftast að finna í versluninni Iceland, Bónus á Akureyri kom þar á eftir …

Stéttarfélagið hvetur til samstöðu á Vesturlandi

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Á fundi stjórnar Stéttarfélags Vesturlands 27. september var samþykkt eftirfarandi áskorun:    • Stjórn Stéttarfélags Vesturlands skorar á Sveitarstjórn Borgarbyggðar að óska eftir aðild að þróunar og nýsköpunarfélagi því er Akraneskaupstaður  og Hvalfjarðarsveit hyggjast stofna í samstarfi við Faxaflóahafnir. Félaginu yrði ætlað að laða að fjárfesta og vinna að stærri atvinnuverkefnum á Grundartanga og Akranesi eins og segir í samþykkt Bæjarráðs …

Fulltrúakjör á þing Alþýðusambands Íslands

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samkv. lögum Stéttarfélags Vesturlands skal viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við val fulltrúa á þing ASÍ. Félagið á rétt til að senda 3 fulltrúa á fundinn, sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu dagana 17. til 19. okt. 2012. Framboðslistum, þar sem tilgreindir eru 2 aðalfulltrúar frá SGS-deildunum og 1 frá LÍV-deild og jafnmargir varafulltrúar, ásamt tilskyldum fjölda meðmæla fullgildra félagsmanna, skal …