Helgi í Reykjavík losnar vegna forfalla

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Íbúðin að Ránargötu 11 í Reykjavík er nú laus til útleigu frá 22. ágúst til 3. september. Leiguverð til félagsmanna er kr. 3.500. Hægt er að leigja eina nótt í einu, nema um helgar þá þarf að leigja frá föstudegi til sunnudags. Nú er um að gera að grípa tækifærið og skreppa í stutta en notalega borgarferð!   

Íbúðin á Akureyri

Stéttarfélag Vesturlands Tilkynningar

Nú er íbúðin á Akureyri laus næstu 2 helgar, eða 17.-19. og 24.-26. september. Gríptu tækifærið!!  

Staðan í orlofshúsum Stéttarfélags Vesturlands

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Ránargata 11, Reykjavík:Íbúðin er laus til 20. ágúst, eftir það eru helgar bókaðar til 12. sept. en dagar lausir í miðri viku. Húsafell: Vikan 20.-27. ágúst er laus í Kiðárskógum 6Frá og með 3. september er svo alveg laust nema hvað ein helgi hefur verið bókuð í október. Akureyri:Ekkert hefur verið bókað í íbúðina á Akureyri eftir 27. ágúst Ölfusborgir:  …

Atvinnulausir 60 ára og eldri geta átt rétt á leiðréttingu!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Ástæða er til að vekja athygli á breytingum sem gerðar voru á lögum um atvinnuleysistryggingar með lögum nr. 70/2010, sem tóku gildi í júní sl. Breytingar þessar fela meðal annars í sér að þeir sem eru 60 ára eða eldri og hafa fengið skertar greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði á tímabilinu 1. mars 2009 til dagsins í dag, vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóði, …

Eigum enn, bæði útilegu- og veiðikort, mikill sparnaður!

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands selur félagsmönnum sínum útilegukortið á kr. 6.000, en almennt verð mun vera kr. 13.900. Kortið veitir aðgang að tjaldstæðum á yfir 30 stöðum á landinu, fyrir tvo fullorðna og fjögur börn. Nánari upplýsingar um útilegukortið er að finna á vefnum www.utilegukortid.is .Veiðikortin voru að seljast upp hjá okkur þannig að við höfum fest kaup á fleirum.  Þau erum við …

Skrifstofan í Búðardal

Stéttarfélag Vesturlands Tilkynningar

Vegna sumarleyfa færast til opnunardagar skrifstofunnar í Búðardal. Næst verður opið fimmtudaginn 29. júlí og síðan 12. ágúst.   

Sumarlokun í Hvalfjarðarsveit

Stéttarfélag Vesturlands Tilkynningar

Skrifstofa félagsins að Innrimel í Hvalfjaraðarsveit verður lokuð þriðjudaginn 20. júlí og aftur þriðjudaginn 3. ágúst  

Ránargata 11 í Reykjavík verður leigð áfram næsta árið

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Reynslan af útleigu á íbúðinni í Reykjavík hefur verið góð. Þetta fór hægt af stað í fyrra sumar  en í mest allan vetur hafa helgarnar verið leigðar tvo mánuði fram í tímann. Virku dagarnir hafa svo  farið út, þó með minni fyrirvara og komið hefur fyrir að ekki takist að leigja samfellt. Á aðalfundi félagsins  í apríl sl. var staðfest …

Fór launahækkunin 1. júní fram hjá þér?

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Samkvæmt kjarasamningum sem gerðir voru 17. febrúar 2008 og með síðari breytingum og samkomulögum, urðu breytingar á launatöxtum frá 1. júní sl. Hjá þeim sem ekki taka laun eftir taxtakerfi var hækkunin 2,5%.  Hafi laun verið lítilsháttar umfram taxta þarf að gæta þess að 2,5% hækkunin leiði ekki til þess að viðkomandi launamaður verði undir taxta, komi það upp þá gildir …

Orlofsávísanir Iceland Express

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Enn eru nokkrar orlofsávísanir eftir, þær verða seldar á skrifstofu Stéttarfélagsins í Borgarnesi. Verð til fullgildra félagsmanna kr. 15.000 fyrir 25.000 kr. orlofsávísun. Fyrstur kemur fyrstur fær.