1.maí í Borgarnesi og Búðardal

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Það var ánægjulegt hversu margir komu með okkur í kröfugöngu 1.maí sl. en í ár voru 50 ár síðan fyrst var gengin kröfuganga í Borgarnesi.

Einnig komu margir á baráttufundinn okkar sem haldinn var í Hjálmakletti sem var virkilega gaman.

Fram komu krakkar á unglingastigi Grunnskólans í Borgarnesi sem sungu fyrir okkur lög úr Mamma Mía og Sigga Beinteins söng nokkur lög við mikla gleði viðstaddra. Að lokum sungu dömurnar í Freyjukórnum fyrir okkur nokkur lög. 9.bekkur Grunnskólans í Borgarnesi sáu svo um Kaffiveitingar.

Hér má lesa sem Signý flutti í tilefni dagsins og hér má lesa ræðu formanns.

Í Búðardal var einnig vel mætt. Selma Björns kom og söng sig inn í hjörtu viðstaddra og  Þórunn Sveinbjörnsdóttir hélt ræðu dagsins og hana má sjá hér.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei