Útboðum á ræstingu hjá ýmsum stofnunum Borgarbyggðar mótmælt

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands og Kjölur stéttarfélag í almannaþjónustu mótmæla vinnubrögðum sveitarstjórnar Borgarbyggðar vegna fyrirhugaðs útboðs á ræstingum hjá ýmsum stofnunum sveitarfélagsins.

Stéttarfélögin og þeir félagsmenn þeirra sem starfa hjá Grunnskóla Borgarness sem skólaliðar með ræstingu furða sig á þessari ákvörðun.

Í nóvember 2022 segir m.a. í fundargerð Byggðarráðs  um stöðu ræstinga að:

mikilvægt sé að horfa til gæða, sveigjanleika og fyrirsjáanleika í mönnun, hagkvæmni, áhrifa á starfsemi viðkomandi stofnana og á starfsfólk.

Við hörmum að nú sé ákveðið að bjóða út  ræstingu í Grunnskóla Borgarness án þess að ræða við þær konur  sem annast hana. Í starfslýsingum vegna ræstinga koma ekki fram öll þau störf sem þarf að sinna og fela m.a. í sér að hugga, snýta, hlúa að og leiðbeina, milli þess sem stundum þarf að þrífa upp allskonar líkamsvessa, vegna þess sem gerist í dagsins önn.

Við teljum að starfið hafi í raun gengið vel undir verkstjórn núverandi húsvarðar og skólinn verði í alla staði  verri vinnustaður eftir, ef þessi ákvörðun verður látin standa.

Komi til þess að fjórum skólaliðum sem annast ræstingar o. fl. í Grunnskóla Borgarness verði sagt upp störfum , þá viljum við benda á að það er að okkar mati vanhugsuð ákvörðun, aðför að starfsfólkinu sem um ræðir og aumt yfirklór vegna lélegra stjórnarhátta

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei