Stéttarfélag Vesturlands hélt 50. fund stjórnar félagsins þriðjudaginn 15. nóv. á fundinum var samþykkt eftirfarandi tillaga:
“ 50. fundur stjórnar Stéttarfélags Vesturlands haldinn þriðjudaginn 15. nóvember 2011, í fundarsal félagsins í Alþýðuhúsinu, Sæunnargötu 2a í Borgarnesi, samþykkir að veita styrki til þeirra leikskóla sem starfa á félagssvæðinu. Styrkirnir nemi kr. 60.000.- til hvers skóla og skal nota til kaupa á kennslugögnum eða með öðrum hætti til að örva málþroska nemendanna og efla lestraráhuga þeirra.“
Leikskólarnir eru 8:
— Auðarskóli í Dölum 39 börn 9 starfsmenn
— Hraunborg á Bifröst 55 börn 13 starfsmenn
— Hnoðraból í Reykholtsdal 15 börn 5 starfsmenn
— Andabær á Hvanneyri 36 börn 11 starfsmenn
— Ugluklettur í Borgarnesi 65 börn 21 starfsmaður
— Klettaborg í Borgarnesi 60 börn 20 starfsmenn
— Leikskólinn Laugargerði 13 börn 2 starfsmenn
— Skýjaborg í Hvalfjarðasveit 36 börn 10 starfsmenn
— alls eru 319 börn á leikskólunum og starfsmennirnir 91
Rétt er að geta þess vegna talna um fjölda starfsmanna eru ekki alltaf sömu forsendur á bak við þær, þ.s. um mismunandi starfshlutfall er að ræða og einnig í sumum tilfellum um samrekstur með gunnskólum á viðkomandi svæði t.d. um mötuneyti og fl.
Stéttarfélag Vesturlands hefur á undanförnum árum lagt ýmsum góðum málefnum lið á félagssvæði sínu. Að þessu sinni var ákveðið að styðja við yngstu kynslóðina. Leikskólar eins og aðrar stofnanir sveitarfélaganna á félagssvæðinu hafa fundið fyrir niðurskurði. Þó að upphæð styrkjanna sem félagið leggur hverjum leikskóla til sé ekki há, þá er það von okkar að hún geti nýst vel. Við viljum líka sýna í verki áhuga okkar á því að efla menntun þjóðarinnar og mikilvægi þess að geta lesið sér til gagns. Fræðslusjóðir stéttarfélaganna sem urðu flestir til með kjarasamningum fyrir rúmum 10 árum hafa stutt starfandi félagsmenn til náms. Margir þeirra hafa einmitt þurft að byrja á því að takast á við lestrarörðugleika, þegar lagt hefur verið af stað til náms á nýjan leik. Nýlegar rannsóknir sýna að um fjórðungur ungra drengja í síðustu bekkjum grunnskóla geta ekki lesið sér til gagns. Þetta eru ekki góðar niðurstöður. Stjórn Stéttarfélags Vesturlands vill hvetja til þess að þessu verði breytt og telur að því fyrr sem áhugi barna á bóklestri er vakinn, því meiri líkur séu á því að þau nái góðum tökum bæði á málnotkun og málskilningi. Við viljum líka hvetja foreldra og ekki síst afa og ömmur til að segja börnunum sögur og lesa fyrir þau. Það að efla læsi og lestraráhuga er verkefni alls samfélagsins og við viljum leggja okkar að mörkum.