Allt að 35% verðmunur á páskaeggjum

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Algengast er að 20-30% verðmunur sé á hæsta og lægsta verði á páskaeggjum milli matvöruverslana að því er fram kemur í nýrri verðkönnun sem Verðlagseftirlit ASÍ gerði í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Bónus var oftast með lægsta verðið á þeim eggjum sem skoðuð voru en Samkaup-Úrval og Iceland voru oftast með hæsta verðið. Flest páskaeggin í könnuninni voru fáanleg í Iceland og Fjarðarkaupum en fæst í Kosti og Nóatúni.


Bónus var oftast með lægsta verðið í könnuninni eða á 19 af þeim 27 tegundum páskaeggja sem kannað var verð á. Af þeim 18 tegundum eggja í könnuninni sem unnt var að bera saman verð á milli Bónuss og Krónunnar reyndist einungis 1 krónu verðmunur á verslununum tveimur í 11 tilvikum og innan við 10 króna verðmunur í 15 tilvikum.


Hæsta verðið í könnuninni var oftast í Samkaupum-Úrvali eða á 10 páskaeggjum af 27 og í Iceland sem reynst 8 sinnum með hæsta verðið.


Flest páskaeggin í könnuninni voru fáanleg í Iceland sem átti öll eggin sem skoðuð voru, í Fjarðarkaupum voru 26 af 27 tegundum fáanlegar og í Hagkaupum 25 tegundir. Fæst eggjanna voru fáanleg í Kosti eða 5 talsins en af þeim tegundum sem könnunin náði til  voru aðeins fáanleg egg frá Góu í Kosti. Í Nóatúni voru 12 af þeim 27 eggjum sem skoðuð voru fáanleg.


Oftast var 20-30% munur á hæsta og lægsta verði páskaeggjanna í könnuninni. Sem dæmi má nefna að 25% verðmunur var á 320 gr. páskaeggi nr. 4 frá Nóa Síríus sem var ódýrast á 1.279 kr. í Bónus en dýrast á 1.598 kr. í Samkaupum–Úrvali, en það er 319 kr. verðmunur. Þá var 35% verðmunur á 250 gr. páskaeggi nr. 4 frá Freyju sem var ódýrast á 995 kr. í Krónunni en dýrast á 1.346 kr. í Iceland sem er 351 krónu verðmunur.  Minnstur verðmunur í könnuninni var á Góu páskaeggi nr. 6 sem var ódýrast á 1.549 kr. í Kosti en dýrast á kr. 1.799 í Nettó sem er 16% verðmunur.
Sjá nánar niðurstöður í töflu
Verðkönnunin tók til algengra páskaeggja frá íslenskum framleiðendum.
Könnunin var gerð í samtímis í eftirfarandi verslunum þriðjudaginn 19. mars: Bónus, Krónunni, Nettó, Iceland, Hagkaupum, Fjarðarkaupum, og Samkaup-Úrvali. Vegna þeirrar afstöðu verslana Kosts, Nóatúns og Víðis að vísa fulltrúum verðlagseftirlitsins á dyr voru verð tekin í þeim verslunum miðvikudaginn 20. mars. 
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.
 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei