Kjaramálaráðstefna Stéttvest 7. september

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Stéttarfélag Vesturlands boðar til kjaramálaráðstefnu þann 7. september nk. að Sæunnargötu 2a í Borgarnesi og stendur hún frá kl. 10:00 til 17:00. Ráðstefnan er liður í undirbúningi fyrir komandi kjarasamninga. Við viljum hvetja fólk til að fjölmenna og taka virkan þátt í umræðum, þannig að samningafólk okkar hafi gott veganesti í komandi kjaraviðræðum.


Að ráðstefnu lokinni býður Stéttarfélagið þátttakendum upp á kvöldverð. Vinsamlegast skráið ykkur til þátttöku í síðasta lagi 2. september í s: 430 0430 eða með tölvupósti á stettvest@stettvest.is


Dagskrá:


10: 00 – 10:05  Setning:  Signý Jóhannesdóttir
10:05 – 10:30  Kraftlausar krónur – Ólafur Darri Andrason
10:30 – 11:00  Vottað launamisrétti – Maríanna Traustadóttir
11:00 – 11:30  Húsnæðishokur – Ólafur Darri Andrason
11:30 – 12:00  Menntun í NV kjördæmi –  Geirlaug Jóhannsdóttir


12:00 – 13:00  Hádegismatur
13:00 – 15:00  Hópavinna – 2 umferðir – Leiðir til úrbóta
Kjaramál (hópstjóri Ólafur Darri Andrason)
   Húsnæðismál (hópstjóri Maríanna Traustadóttir)
Starfsmenntamál (hópstjóri Eyrún Valsdóttir)
15:00 – 15:30  Kaffi
15:30 – 16:30  Hópavinna – 1 umferð – Leiðir til úrbóta
Kjaramál (hópstjóri Ólafur Darri Andrason)
   Húsnæðismál (hópstjóri Maríanna Traustadóttir)
Starfsmenntamál (hópstjóri Eyrún Valsdóttir)


16:30 – 17:00  Niðurstöður hópavinnu og atkvæðagreiðsla
18:00 =>  Kvöldmatur

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei