Breytingar á styrkjum hjá Landsmennt,Ríkismennt og Sveitamennt

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Frá og með 1.janúar 2018 mun eftirfarandi hækkun einstalingsstyrkja taka gildi.


 


Um er að ræða breytingar á hámarki einstaklingsstyrkja sem taka gildi hjá öllum sjóðunum fjórum, Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt


Hámarksgreiðsla á ári fer úr kr. 75.000,- fyrir almennt nám í kr. 100.000,-


Þriggja ára uppsafnaður styrkur hækkar úr kr. 225.000,- í kr. 300.000,- fyrir eitt samfellt nám


Hámarksstyrkur vegna námskeiða sem falla undir frístunda/tómstundanámskeið munu hækka í kr. 30.000,- á ári og dregst jafnframt af heildarupphæð einstaklingsstyrks þess árs


Þá er athygli vakin á því að sérstakur styrkur vegna meiraprófs fellur undir almenna einstaklingsstyrki og verður því áfram kr. 100.000.-


ATH: Um er að ræða breytingar sem taka gildi f.o.m. 1. janúar 2018 og þá gagnvart því námi sem hefst frá og með þeim tíma.


Aðrar reglur verða óbreyttar og gilda samhliða fyrrgreindum breytingum.


 


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei