Starfsmenntasjóður verslunar og skrifstofufólks – breytingar um áramótin

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Við vekjum athygli á að styrkir Starfsmenntastjóðs verslunar og skrifstofufólks voru hækkaðir um áramót og má sjá betur hér 


Hækkun er á styrkjum til félagsmanna SVS og fyrirtækja. Veittur er hámarksstyrkur allt að 130.000 kr. á ári.


90% af námi/starfstengdu námskeiðsgjaldi/ráðstefnugjaldi – hámark 130 þúsund.


50% af tómstund – hámark 30 þúsund (dregst frá hámarksstyrk).


50% af ferðastyrk vegna náms – hámark 40 þúsund (dregst frá hámarksstyrk).


 Skilyrði fyrir styrkveitingu er að félagsmaður greiði námsgjöld/námskeiðsgjöld/ráðstefnugjöld.


Uppsöfnun einstaklinga til þriggja ára verður því 390 þúsund fyrir einu samfelldu námi.



Veittir fyrirtækjastyrkir hafa að auki hækkað í samræmi við styrki til einstaklinga.


 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei