Breytt styrkhlutfall fræðslusjóðanna – Landsmennt, Sveitamennt og Ríkismennt

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Vegna áhrifa frá Covid 19 settu fræðslusjóðirnir af stað átak í fræðslu sem hófst 15. mars 2020. Hluti átaksins fólst í því að endurgreiðsluhlutfall styrkja hækkaði tímabundið úr 75% í 90% hjá bæði fyrirtækjum og til einstaklinga.

Nú er átakinu lokið og stjórnir sjóðanna hafa ákveðið að endurgreiðsluhlutfallið fari í 80% hjá fyrirtækjum (fyrirtæki utan SA 72%)  og 80% til einstaklinga hjá Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt. Breytingin tekur gildi 1. janúar 2023 gagnvart því námi sem hefst eftir þann tíma.

Hægt er að sjá reglur vegna einstaklingsstyrkja hér: Landsmennt – Sveitamennt – Ríkismennt

Hægt er að sjá reglur vegna fyrirtækjastyrkja og styrkja til stofnana sveitarfélaga og ríkisins hér: Landsmennt – Sveitamennt – Ríkismennt

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei