FÉLAGSMANNASJÓÐUR

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Félagsmenn Stéttarfélags Vesturlands sem starfa hjá eða hættu störfum hjá sveitarfélögum á síðasta ári, ATHUGIÐ!

Allir félagsmenn aðildarfélaga SGS sem starfa eða störfuðu hjá sveitarfélagi á tímabilinu frá 1. febrúar 2020 til 31. desember 2020 eiga að fá greitt úr félagsmannasjóði 1. febrúar nk. 

Til að hægt sé að tryggja að greiðsla úr sjóðnum berist vinsamlegast fyllið út þetta rafræna eyðublað. 

Í núgildandi kjarasamningi við sveitarfélöginvar samið um og stofnaður sérstakur félagsmannasjóður. Atvinnurekandi greiðir mánaðarlegt framlag í sjóðinn sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanna og er greitt úr sjóðnum 1. febrúar ár hvert. 

Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við starfsfólk stéttarfélagsins í síma 4300430 eða á netfangið stettvest@stettvest.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei