Stéttarfélag Vesturlands styrkir björgunarsveitirnar með kaupum á Neyðarkallinum. Björgunarsveitirnar vinna óeigingjarnt starf í þágu okkar allra og því var það félaginu bæði ljúft og skylt að bregðast við neyðarkallinu og kaupa Neyðarkallinn. Í ár eru 20 ár liðinn frá því að átak björgunarsveitana hófst með sölu á Neyðarkallinum sem hefur verið hornsteinn í fjáröflun sveitanna. Með þeim fjármunum sem hafa safnast hafa björgunarsveitirnar elft björgunar- og slysavarnastarf um allt land. Það er segin saga að þegar neyðarkall berst þá eru sjálfboðaliðar björgunarsveitanna ávallt reiðubúnir að bregðast við. Stéttarfélag Vesturland vill halda áfram að styðja björgunarsveitirnar í því að tryggja öryggi landsmanna og hvetur félagsfólk sitt til að taka vel á móti sjálfboðaliðum björgunarsveita og slysavarnadeilda sem munu bjóða neyðarkallinn til sölu næstu daga í flestum verslunarkjörnum landsins.
Á myndinni má sjá Fannar Þór Kristjánsson formann bjsv. Brákar í Borgarnesi afhenda Silju Eyrúnu Steingrímsdóttur formanni StéttVest Neyðarkall ársins 2026.

