Iðnaðarmenn í Stéttarfélagi Vesturlands athugið – vinnutími samræmdur frá 1. febrúar 2024

Stéttarfélag Vesturlands Fréttir

Frá og með 1. febrúar nk. verður einn samræmdur vinnutími hjá aðildarfélögum Samiðnar, en frá þeim tíma verður virkur vinnutími 36 klukkustundir á viku. Jafnframt verður deilitala dagvinnukaups 156 frá sama tíma. Áhrif breytts fyrirkomulags á kaffi- og matartíma hefur engin áhrif nema um annað sé samið.

Umrædd breyting byggir á 3. grein í kjarasamningi aðila frá 12. desember 2022 en gildistími hans er frá 1. nóvember 2022 til 31. janúar 2024.

Ef óskað er aðstoðar við útfærsluna er hægt að senda tölvupóst á postur@samidn.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei